Glasgow Smaskow :)
Brilljant ferð í alla staði með snilldar félagsskap :) Hef ekki tíma til að segja frá í samfelldu máli þannig að punktar verða að nægja að þessu sinni ;) Annars vil ég þakka Jessie, Birgi Leif og Arnari Mr næs guy kærlega fyrir yndislega helgi :)
* Justin Timberlake stóðst allar væntingar sem til hans voru gerðar..... þvílíkt flott sýning, töff lög og drengurinn sjálfur allschwakalegt augnakonfekt :) Úff mar! Við skvísurnar vorum á snilldarstað og nutum útsýnisins í botn. Timbaland kom meira að segja líka og tók nokkur lög í hálfleik. Futuresex/Lovesounds hefur ekki stoppað í spilaranum frá því að ég kom af tónleikunum :) og mun ekki í bráð I´m tellin ya :)
* Komst að því að það er ekki mikið af fallegu fólki í Glasgow. Fegurðarprósentan rauk úr 1% í 98% þegar við íslensku skvísurnar mættum á svæðið. Nú skil ég þegar það er alltaf talað um að íslenskt kvenfólk sé svo bjútífúl, þetta er ekki bara þjóðremba einfaldlega falleg gen. Ég meina vó, ekkert hægt að veiða þarna eða neitt...... einu sætu strákarnir sem við Lára sáum voru bekkjarfélarar Jönu í leiklistarskólanum. Þar var meira að segja einn sem var svo nettur að við vorum að pæla í að fá magann á honum lánaðan til að þvo þvottinn okkar :) hehe Annars var þetta meira og minna tannlaust, með magann flagsandi út um allar trissur, 70% rauðhært (ekki að það sé eitthvað verra en það er til ljótur rauður litur sko), og bara frekar klént. Maður er greinilega of góðu vanur hér heima.
* Fengum að sjá æfingu á leikritinu hennar Jönu og bekkjarins hennar. Stelpan að standa sig vel marrrr :) hehe Og næstum því búin að ná skoskunni alveg :) Við Lára vorum einar í áhorfendastúkunni og áttum í pínu erfiðleikum við að skilja skoskuna..... meira hrognamálið en alveg stórskemmtilegt og hlógum við meira af hreimnum en bröndurunum í leikritinu :) "Oh bloody fucking Scheiiit I'm tellin yaaaa!" hhahahaha Táruðumst og allt! Hlakka rosalega til að fylgjast með Jessie í framtíðinni... hún er sko rísandi stjarna og það er vægt til orða tekið ;)
* Íþróttadeild RÚV hringdi í Birgi Leif og spurði hann hvernig gengi á golfmótinu. Birgir gaf bara skít í RÚV og sagðist vera í fríi í Glasgow og hefði ekki tíma í þetta þó að hann hafi farið eina holuna á fugli fyrr um daginn. Meira hvað þessir fréttamenn eru ágengir ;)
* Smökkuðum "makkulate" :) Munið þið eftir súkkulaðinu í Friends sem Monica smakkaði en það var ekki búið að fá samþykki frá matvælaeftirlitinu, jú jú það er komið á markað í Glasgow og svona fjandi gott á bragðið :) Hell yeah!
* Justin er algjört gúmmulaði!!!
* AF HVERJU er ekki Starbucks á Íslandi???? Ohhh sakna Starbucks meira en Justin og þá er miiiikið sagt!!! Ef þið hafið ekki smakkað Blackcurrant/Rasberry drykkinn sem fæst þar.... man alive... gerið það við fyrsta tækifæri!!! :)
* Vissuð þið að Marlon Brando er besti leikari fyrr og síðar og Johnny Depp er í öðru sæti.... jámm svona er lífið :)
* Glasgow er megakrúttleg borg og það liggur við að maður heyri kindajarmið í fjarska því sveitin er svo nálægt, just like home ;) Gott loft, afar gestrisið, gott fólk og megakrúttlegir leigubílar :)
* Fílhildur skemmti sér vel með okkur skvísunum :) Spilaði með okkur og allt :) Spurning um hvort hún komi með okkur til Cairo í haust?? :) Eða fékk hún nóg af því að ég notaði hana sem kodda alla ferðina? hehehe Henni er nær að vera svona mjúk! :) Svo var félagsskapur Ísa, Músu og Músa afar skemmtilegur og tala nú ekki um drottningu heimilisins hana Myntu :) hehe
Já lífið er ljúft gott fólk! Og það er ekki sjálfsagður hlutur! Sumarið er mætt að mínu mati og nú er bara málið að vakna kl 8 alla morgna og fara út með sængina og sofna úti á stétt. Elska vinnuna mína á sumrin.... það er einhvern veginn allt svo miklu léttara og fólkið miklu glaðlegra og ég hlakka til að mæta til vinnu í hvert skipti! Núna sit ég og glápi á Eurovision á næturvaktinni og ég veit ekki hvað fólk var að væla yfir því að Ísland komst ekki áfram og að Austur-Evrópulöndin séu að yfirtaka keppnina. Að mínu mati fannst mér okkar framlag gjörsamlega GLATAÐ alveg frá upphafi þegar það var kosið hér heima og þau lög sem komust áfram á fimmtudaginn bara skítsæmileg. Íslendingar eru bara tapsárir :) Og svo verður spennandi að sjá hvort ríkisstjórnin heldur velli eður ei..... ég kaus allavegana rétt! :)
Later pípóls :) Vonandi líður ykkur vel, með sól í hjarta og bros á vörum. Og munið svo að hlæja í allavegana 10 mínútur á dag.... það er svo hollt og svo lengir það líka lífið :) hehe knús