Ji vitiði hvað! Icelandair splæsti páskaeggjum á allt liðið!! Er búin að vinna hjá fyrirtækinu síðan 2001 og er þetta í fyrsta skipti sem þetta er gert og vonandi ekki í það síðasta. Þetta er rosalega flott hjá þeim því ekki bara það að við fengum páskaegg, heldur var það merkt Icelandair og var búið að breyta gömlum íslenskum málsháttum í málshætti tengda Icelandair t.d. fékk ég "Icelandair flýgur í flest skjól", Jonni fékk "Oft veltir lítill hlaðmaður þungu hlassi" og Pétur fékk "Sjaldan er ein flugfreyjan stök" :) Einnig fékk einhver "Flýgur hver til fjörsins" Ýkt sniðugt hjá þeim :)
Annars er búið að vera frekar rólegt í vinnunni yfir páskana, mest búið að tjilla og borða góðan mat eins og maður á til að gera á hátíðs- og tyllidögum! Ágætt svona öðru hverju á milli allra hinna crazy mofo daganna :) Horfðum m.a. á Snatch! Það er möst að horfa á þessa mynd með reglulegu millibili, ekki bara ótrúlega fyndin heldur mikið úrval af föngulegum karlmönnum!
Talandi um karlmenn.... haldiði að ég hafi ekki bara fallið fyrir hóp af Pólverjum í gærmorgun....... nei ekki það að þeir voru eitthvað mega sætir... ég datt og það á annað hnéð og lenti þannig eins og ég væri að biðja um hönd eins þeirra í hjónaband! Typical my luck! Þeim var skemmt ójá! Svo datt Kristín líka úti á hlaði.... hehehe Datt beint á rassinn og rann næstum því undir eina flugvélina á hlaðinu! Múahahaha hefði viljað sjá það! Já það er um að gera að fara varlega á þessum síðustu hálkudögum vetrarins..... Imba Fox | 12:29 e.h. |
Djöfull myndi ég gefa á mér annað nýrað fyrir einn svona með öllum fylgihlutum og steingráan að lit! Alltaf gott að láta sig dreyma......
Annars reyndi yfirmaðurinn minn að gabba okkur í gær. Það lenti einkavél og hann spurði okkur hver vildi þjónusta hana og enginn var neitt voðalega æstur í það þannig að hann bað mig. Svo var ég ekki alveg að nenna þessu og hann sagði "Imba, lestu beiðnina!" og ég gerði það og var samt ekkert að sýna neinn ofuráhuga. Þá benti hann mér á nafnalistann á farþegunum og sá ég þá að allar kellingarnar í Desperate Housewifes væru um borð í einhverri promotion ferð og væri að stoppa hér til að taka eldsneyti. Yfirmaður minn hélt að af því að við erum þrjár stelpur sem vinnum í Load Control að við yrðum geeeeðveikt æstar en engin af okkur horfum að ráði á þessa þætti og ég hef ekki einu sinni séð einn þátt þannig að mér var skítsama ;)
Ég vappaði út í vél og horfði restin af starfsfélögunum mínum út um gluggann á þegar ég tók niður upplýsingar fyrir fuelkallinn en fór ekkert inn í vél. Á meðan kölluðu strákarnir í talstöðina "Imba, fáðu eiginhandaráritun fyrir okkur!" o.fl til að reyna að láta mig tékka á þessu (hann sagði sem sagt öllum hinum að þetta væri djók) En ég var bara tjill tjill og gekk frá vélinni og svo fór hún í burtu. Yfirmaðurinn minn var var frekar svekktur því þetta floppaði alveg! Ég sagði honum að ef þetta hefði verið crewið í Prison Break þá hefði ég kannski orðið eitthvað spennt :) múhahaha By the way þetta er sami yfirmaður og bakaði vöfflurnar um daginn. Finnst ykkur hann ekki skemmtilegur!?! Mér finnst hann æði!!! Imba Fox | 3:04 e.h. |
Átti í skemmtilegum samræðum við bandarískan vin minn um muninn á bandarísku og íslensku fólki hvað varðar sambönd, skuldbindingar og bara hegðun gagnvart hinu kyninu. Við Íslendingar erum stundum fullgjörn á að dæma Kanana hvað þeir eru fljótir að gifta sig (kannski eftir að hafa þekkst í ár) og eignast oftast ekki börn fyrr en þeir eru búnir að gifta sig o.s.frv. Ok persónulega myndi ég aldrei gifta mig eftir að hafa þekkt gæjann í ár! Það er bara rugl! En mér finnst aftur á móti mikið til í því að gifta sig áður er krakkaskrípin koma, það er að segja ef maður giftir sig yfirhöfuð!
Það er meðal annars eitt af því sem þessum vini mínum finnst svo fáránlegt við íslenskar konur. Þær eiga kannski 3 krakka með 3 mönnum og enda svo einstæðar! (ok ýkt dæmi en það er hellingur um þetta) Held að það sé hvergi annars staðar í heiminum jafn mikið af ungum einstæðum mæðrum eins og hér. Of ef þær eru ekki einstæðar þá eru til stelpur sem eru búnar að sofa hjá svo mörgum að þær hafa enga tölu á því hversu margir rekkjunautarnir hafa verið. Þær eru kannsi staddar í partýi og hafa sofið hjá 5 af 10 körlunum sem þar eru – jammííí!!! >:Þ En þrátt fyrir þetta þá finnst honum samt mikið úrval af fallegu kvenfólki hér miðað við þær í USA. Í USA segir hann að standard kallanna á konum ca. svona: 1)Ugly, 2) Do-able og 3) Cute, en á Íslandi ca. svona: 1) Ugly, 2) Cute og 3) Very attractive ;) hehe
Fyrir mitt álit þá eru margar ungar stelpur bara orðnar druslur fyrir tvítugt. Sá á heimasíðu um daginn að þar voru tvær stelpur búnar að skrifa lista inná bloggið sitt með gæjunum sem þær hafa sofið hjá og voru að deila því með öðrum hvort það væri þess virði að sofa hjá þeim eða ekki. Listinn var frekar langur og voru fullt af frægum aðilum á honum. Mikill klassi? Niiiii bara druslulegt!
Svo fannst vini mínum líka svo fyndið hvað íslenskir karlmenn eru lengi að þroskast og halda að þeir séu ungir að eilífu, sérstaklega á aldrinum 20-40. Bíða og bíða með það að ná sér í konu og eru bara að eyða tímanum í að skemmta sér og guð má vita hvað og fatta svo þegar þeir eru 40 ára að einu konurnar sem eftir eru eru einstæðu mæðurnar og þá eru þeir með svo miklar kröfur að þeir reyna og reyna við litlar 19 ára stelpur og halda að þær vilji þá en vita ekki að stelpum á þessum aldri finnst bara gaman að djóka í þessum gömlu köllum en ætla sér aldrei neitt með þá! Fattar ekki alveg hvað þessir karlar eru að hugsa og halda að þeir séu að missa af?
Já, svona er þetta skemmtilegt :) Ég gat ekki annað en skemmt mér yfir þessum pælingum! En svona er bara Ísland í dag. Fólk er ekkert að drífa sig að neinu. Ég ætla ekki að vera að dæma einn eða neinn, hef það bara nice hjá m&p þó að ég sé nú að leita af íbúð! Bara svo fokking dýrt að kaupa þessa dagana!!! Svo er ég líka svo kröfuhörð sjálf á kalla og plús það að ég gæti ekki hugsað mér að eiga krakka… sjitt! Allavegana ekki núna! Fínt að knúsa litlu frænku og svo á hún góða múttu sem sér um hana :) hehe Vitið þið hvað leikskólapláss kostar!!! Fukk ég ætla ekki einu sinni að ræða þetta… hvort eð er orðið alltof langur pistill og þið sem nenntuð að lesa… þið eruð sannir aðdáendur ;)
Knús í bili & eigið yndislega helgi :) Imba Fox | 9:09 f.h. |