Ég get svarið það að tíminn flýgur alltof hratt.... mér finnst ég hafa orðið 22 ára í gær!!! Ótrúlegt að unglambið ég verði 28 ára "ung" á næsta ári og alltaf er maður að læra eitthvað nýtt. Ég sem hélt að ég vissi allt þegar ég var 18 ára! Og maður sér ekki hvað maður er farinn að eldast fyrr en jólakortin eru skoðuð og vinkonur manns eru sum orðin 2-3 barna mæður ;) hehe En það er bara gaman. Þetta er alveg eins og þegar mamma mín fær "stelpurnar" til sín í saumó þó að þær séu komnar yfir sextugt ;) Málið er að maður á ekki að hætta að leika sér þegar maður verður gamall, maður verður einmitt gamall þegar maður hættir að leika sér. Og lífið snýst heldur ekki um það að eiga og eignast heldur að vera og gera og að muna það að glataður tími kemur aldrei aftur. Ég ætla að reyna að tileinka mér þetta á komandi ári og um leið strengja nokkur skemmtileg og óvenjuleg áramótaheit að þessu tilefni ;)
Á næsta ári ætla ég að: * Hitta einhverja konu sem heitir sama nafni og ég, Ingibjörg Þórðardóttir * Stefna að því að heimsækja 3 nýjar borgir og helst á óskalistanum eru París, Dubai og Glasgow :) * Ná að sippa 300x án þess að stoppa. * Skíra stjörnu eftir mér - bara svona fyrir mig ;) * Læra 3 ný frönsk orð í hverri viku * Standa á haus í 10 sekúntur * Ferðast eitthvað innanlands í sumar - hvert er ennþá óvissa * Bjarga járnsmið úr sjálfheldu - æi þeir eiga það til að detta á bakið og geta ekki snúið sér við sjálfir ;) * Loka eyrunum þegar heimskt fólk tjáir sig í kringum mig og láta sem það sé ekki á svæðinu og * Brooooosaaaa :)
Svo getur verið að það bætist eitthvað við þennan annars ágæta lista þegar líða fer á árið :) Gleðilegt ár allir saman og gangið hægt inn um gleðinnar dyr og farið varlega en djarflega inn í nýja árið..... Knús my loves :* Imba Fox | 4:02 e.h. |
Hver skírði vítamínið "Sólhattur"? Bara pirrandi að taka þetta vítamín, en ég geri það samt því að ég held að ég verði ekki lasin á að taka það ;) Málið er að þegar ég tek þetta vítamín þá les ég utan á glasið og á því stendur náttúrulega "Sólhattur" þannig að ég fæ lagið "Er það minn eða þinn sjóhattur!" á heilann í hvert skipti sem ég tek þetta ;) Þarf bara að færa þetta yfir í annað ílát því mér finnst þetta vera fínt lag sem slíkt og vil ekki fá ógeð á því ;) Hehe "Er það minn eða þinn sjóhattuuuuur? Er það minn eða þinn sjóhattuuuuur? Já það er minn en ekki þiiiiinn! Er það minn eða þinn sjóhattur?" Hvað er samt málið að semja lag um sjóhatt? Og af hverju finnst mér Sólhattur og Sjóhattur eitthvað líkt? Æi ég veit það ekki..... svo er ég líka með kvef núna þannig að það er spurning hvort þessi sólhattur virki nokkuð??? Imba Fox | 11:52 f.h. |
Jæja skinnin mín ;) Enn á ný eru komin jól. Ég held að ég sé orðin þvílíkt gömul í anda (enda alltaf verið seinþroska ;) ) því núna finnst mér jólin allt í einu snúast um það að þakka fyrir það sem maður á, hafa fjölskylduna mína hjá mér, hlusta á messur, lesa jólaguðspjallið, hlusta á gömlu jólalögin frá því í gamla daga þegar ma&pa voru ung, lesa góða bók eða horfa á skemmtilega bíómynd, spila, lesa jólakort frá vinum og kunningjum, hugsa til þeirra sem eru farnir frá manni og æi.... þið vitið.... bara vera til! Ég hafði engar sérstakar óskir um jólagjafir í ár né í fyrra því mig vantar ekki neitt og ma&pa voru í stökustu vandræðum með mig því þau gefa auðvitað okkur systkinunum alltaf jafnt. Mér hefði verið sama þó þau hefðu gefið það til Afríku eða eitthvað í staðinn. Mér er einhvern veginn orðið sama um veraldlega hluti og ykkur að segja að ef ég myndi deyja á morgun, þá myndi ég deyja sátt því ég er bara þokkalega ánægð með það hvernig ég hef lifað lífinu hingað til.
Alveg finnst mér leiðinlegt að versla eða hreinlega fara út fyrir hússins dyr rétt fyrir jólin. Held að fólk sé gjörsamlega að tapa sér og þetta verður bara verra og verra með hverju árinu sem líður. Margir eru svo að kafna úr stressi að það liggur við að maður fái sér gúmmístuðara svo bílarnir fyrir aftan mann geti bókstaflega ýtt manni áfram í öllum látunum. Veit ekki hvar og hvernig þetta endar allt saman.
En allavegana, langaði að nota tækifærið og óska ykkur öllum, near and far, gleðilegra jóla, árs og friðar og vonandi hafið þið það gott yfir hátíðarnar. Sendi ykkur mikið af knúsum og risakossum og hlakka til að hitta ykkur sem allra fyrst!
Ef einhver getur kláraðþennan bölvaða Harry Hamster leik þá fær sá hinn sami heiðursnafnbótina "Hetja Alheimsins" hjá mér, 6 salernisrúllur, 2 bréfaklemmur, 1 þrist og 5 A4 blöð. Ég get svarið það að þessi hamstur er að gera mig brjálaða!!! Ég er búin að geta náð 9 pítsum af 10 og finn bara ekki leiðina inn á Suður-heimskautið!!! HELP!!! Imba Fox | 11:40 e.h. |
Jú, jú, búbbíuferð nýafstaðin og var þetta afskaplega fín ferð í alla staði, blandað af: * afar afar miklum hlátri *smá verslað *hamingjustundum(happy hours) sem innihélt bjór og kokteila * spa meðferð í svítunni * pínulítið verslað * fleiri hamingjustundir * urðum að fullgildum meðlimum TGI Fridays klúbbsins í Sweeden * sumir rifu kjaft við dyraverði og spurðu þá "Hvort þeir væru í raun hamingjusamir!" * sumir létu sig hafa það að fara út að reykja því það er bannað að reykja inni á veitingastöðum Imbu til mikillar gleði og ánægju * sumir læstu ferðatöskunni sinni og týndu lyklunum og þurfti aðstoð frá stórum klippum í boði hótelsins * fengum steypi- steypiregn í boði Sweeden, afskaplega hressandi og tóku sumir Mary Poppins takta * sumir sýndu sitt allra heilagasta í lyftu hótelsins (já ég get svarið það, það allra heilagasta) * sumir hittu bassaleikara Iron Maiden, heitir by the way Steve Harris, og kysstu á þeim hárið og tóku í spaðann á honum og týmdu svo ekki að þvo á sér hendurnar þó að sumir hefðu aldrei vitað hver Steve Harris væri!!! * sumir tóku mynd af sér með lífverði Steve Harris því að þeir héldu að hann væri Steve Harris en sáu strax að þeir höfðu skitið í skyrið þegar lífvörðurinn spurði suma "Why do you want a photo of me?" Múhahahaha * sumir flippuðu á nærbuxunum og berir að ofan með síða hárkollu og sendu mms skilaboð til búbbía heima á Íslandi * sumir létu ljótan Svía bjóða sér upp á drykk og sátu svo uppi með hann ásamt tveimur vinum hans og var annar þeirra eins og froskafóstur í framan * við hittum tvífara margra manna, m.a. Þorgríms Þráinssonar, Baltasars Kormáks, Péturs fjarskylds ættingja í fjölskyldu Berglindar, Viggo Mortensen, Jóa Kristbjörns og margra annarra * komumst að því að sænskir ungir menn eru frekar fríðir * níðþröngar buxur eru í tísku í Svíþjóð, það liggur við að það sjáist í double O and 7 hjá strákunum og svo sáum við ljótasta karlmannsrass sem til er á jörðu (sá maður á ekki að ganga í gallabuxum) *Abba vill mann með stórar verkamannahendur (enga mjóa spýtuputta) en Imbu nægir maður með hendur ;) * sumir sögðust mera með lærleggi fyrir hendur og aðrir gagnrýndu sjálfan sig niður í rassgat ;) You know who you are! Látið ekki svona konur!! ;) hehe *Jahaaa!!! * Búbbíurnar vöktu mikla athygli á börum bæjarins fyrir að vera með brjóst yfir meðallagi og fengu óskipta athygli sænskra karlmanna sem hópuðust í kringum þær eins og mý á mykjuskán ;) Sumir vildu káfa en fengu ekki. * Héldum að við værum hundeltar af lífvörðum kóngafólksins því þeir eltu okkur sem var pínu óþægilegt en þá voru bara vaktaskipti og við gengum akkúrat leiðina sem þeir gengu ;) * sumir komust að því eftir að hafa lesið sms í síma sænsks stráks að Puss þýðir ekki það sama á ensku og sænsku, puss þýðir koss á sænsku ;) * Það eru til Penispumper í Sweeden
........og svo miklu miklu meira ;) Ég er allavegana aaaafar sátt :) Setti með mynd af Steve Harris fyrir þá sem ekki þekkja kauða, hann er flottur mar!!! Er það ekki Berglind?? :) múhahaha
En merkilegast af öllu er að Hrönn búbbía og Haddi eignuðust litla rallýstelpu þegar við vorum úti og við skáluðum fyrir því á írskum pöbb ;) Innilega til hamingju með litlu músina!!!! :)
Takk fyrir frábæra ferð skvísur ;) hlakka til að fara í spaferðina til Ungverjalands ;) hehehe Imba Fox | 11:37 f.h. |
Too hot to handle, drop dead gorgeous, incredibly handsome, amazingly stunning, unbelievably beautiful, absolutely fabulous, extremly fantastic, damn cute and soooooo dreamy og nei ég er ekki að tala um sjálfa mig!
Af hverju eru til svona menn sem eru svo yfirþyrmilega gullfallegir að það er í raun kvöl og pína að horfa á þá? Úff...... not fair..... NOT FAIR!!!!
P.S. Hvaða fífl og fávitar kusu Árna Johnsen??? Hellúúú?? Imba Fox | 9:27 f.h. |
Ég eeeeelska þann sem fann upp Ipodinn!!! Ég elska Ipodinn minn svo mikið að við erum orðin eitt. Við förum saman á rúntinn, í vinnuna, í göngutúra, í ræktina, í rúmið og bara name it.... Það jafnast ekkert á við það að geta útilokað sig frá öllu, skellt á ljúfum -, stuð- eða rokktónum og fara eitthvað allt annað og gleyma stað og stund. Eitt er víst að ég myndi ekki höndla það að fara út að labba eða í ræktina án þess að taka þetta yndi með mér. Tíminn líður svo hratt að áður en maður veit er maður búinn að vara á hlaupabrettinu í hálftíma ;) Yyyyyndislegt!
Hey, eitt enn með gymmið...... það er líka skemmtilegt út af fyrir sig að horfa á ræktarhlunkana og kætast innra með sér þegar þeir hópast nokkrir saman í kringum eitt tæki, allir í hlýralausum bolum og með voða belti svo þeir drepi sig ekki í bakinu, æjandi og óandi og blásandi úr nös og guð má vita öðrum stöðum eins og risastórir blöðruselir þegar þeir svo keppast við að lyfta lóðunum. Svo ganga þeir um eins og biðskyldumerki með tannstönglalappir, alveg ógisslega sterkir ;) hehe Mér finnst þetta alveg óstjórnlega fyndið. Svo eru líka töffararnir sem halda sig sem næst speglinum og horfa á sig með aðdáunaraugum og eins og einn í gærkvöldi, alltaf að laga massíva gullhálsmenið sitt og ég beið bara eftir að hann kyssti biceppana ;) hehehe Segið svo að það sé ekki gaman í ræktinni??? :) Imba Fox | 3:35 e.h. |
Sá þetta á síðunni hjá my friend Huldu Kötu ;) Ég segi það sama og hún, loksins skilur maður hvernig allt þetta virkar ;) Tékk it át...
Útskýring á markaðssetningu
Þú ert kona og sérð flottan mann í partýi. Þú ferð upp að honum og segir, "Ég er frábær í rúminu."Þetta er bein markaðssetning.
Þú ert í partýi með fullt af vinum og sérð flottan mann. Einn af vinum þínum fer upp að honum, bendir á þig og segir, "hún er frábær í rúminu." Þetta er auglýsing.
Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Þú labbar upp að honum, færð símanúmerið hans, hringir í hann daginn eftir og segir, "Hæ, ég er frábær í rúminu." Þetta er símamarkaðsetning.
Þú ert í partýi og sérð flottan mann, þú lagar til fötin þín, labbar upp að honum, réttir honum glasið þitt og segir við hann, "Fyrirgefðu, má ég?" Lagar bindið hans, nuddar brjóstunum létt utan í hann og segir, "Ó á meðan ég man, ég er frábær í rúminu."Þetta eru almannatengsl.
Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Hann labbar upp að þér og segir,"Ég hef heyrt að þú sért frábær í rúminu."Þetta er þekkt vörumerki.
Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Hann langar í þig en þú færð hann til að fara heim með vinkonu þinni. Þetta er söluorðspor.
Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hann hringir í þig. Þetta er tækniaðstoð.
Þú ert á leið í partý þegar þú uppgötvar að það gætu verið flottir menn í öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá. Svo þú klifrar upp á þakið á einu af þessum húsum, sirka í miðjunni og öskrar úr þér lungun, "Ég er frábær í rúminu."Þetta er ruslpóstur. Imba Fox | 4:09 e.h. |
Ég, ásamt Freydísi ofurskutlu, er komin í hóp gamalmenna sem fara í sund eldsnemma á morgnana ;) Haldiði að sé munur? ;) hehe Það er nú svolítill tími síðan ég byrjaði á þessu og sem fyrrverandi sunddrottningu finnst mér þetta náttúrulega bara snilld. En vá hvað maður er fljótur að tapa gömlu góðu töktunum þegar maður þjálfar þá ekki reglulega..... þegar ég byrjaði þá voru gömlu konurnar að taka framúr mér, ég meina halló??? Ég vann meira að segja bikara fyrir 1.sæti! hehe En núna skýt ég blessuðu tjéllingunum ref fyrir rass, nema þeim sem eru með froskalappirnar.... hver myndi svo sem vinna sundkeppni við frosk?
En eins og ég segi, þetta er rosalega gaman ;) mæli hiklaust með því að vakna kl 6:30 og skella sig í spandexið, moldvörpusundhettuna og nördasundgleraugun og synda sem aldrei fyrr!!! Imba Fox | 3:32 e.h. |
Ókei..... Spurning, það er allt í lagi að þola ekki einhvern? Það er eitt stykki manneskja sem er gjörsamlega að rústa hjá mér þoltaugunum eða hvað sem það heitir að ég hélt að þetta væri ekki hægt. Stundum er ég orðin svo tjúlluð að mig langar aðeins að ýta í hana en eins og flest siðprútt fólk veit þá lemur maður ekki aðra. Hvað er hægt að gera? Ohh ég er alveg að klepra..... >:( Kannski á maður að hitta þetta fólk á lífsleiðinni svo að maður viti hvað maður hefur það gott?
Fyrirgefiði fyrir leiðinlegt blogg en ég er að tapa mér! Held að skokk í þessari annars yyyyndilegu rigingu ætti að skola eitthvað af mér! Held að ég skelli mér í joggarann eftir vinnu... I loooove the rain!! :) Imba Fox | 10:44 f.h. |
P.S. Hef ekkert á móti Pólverjum, finnst þeir æðislegir og yndislegir ;) Veit samt að Amy J er ekki sammála mér með það ;) hehe Imba Fox | 12:16 e.h. |
Þá er það vinnuferð þessa árs ;) Tjéééllingin á leiðinni til Köben þann 19. og kem aftur heim 21 :) Mikil tilhlökkun í gangi því sérfræðingar deildarinnar eru búnir að plana eitthvað svaka fjör plús það að Krissi eðalkrútt á afmæli á föstudeginum :) Svo er líka svo langt síðan ég fór út síðast..... heilar 6 vikur!!! Alltof langt og ætla ég að passa að þetta komi ekki fyrir aftur.... ;) Ætla því að skella mér til Stokkhólms með Búbbíunum mínum þann 16. nóvember :) Vá, ég er bara að monta mig :) múhahaha múúúhahaha múúúúúhahahaha :) Kannski maður skelli sér til Ameríku fyrir jólin? Er það ekki möst? Imba Fox | 11:55 f.h. |
Hvað á maður að segja þegar karlmaður segir við mann "Can I pump you? I would love to pump you!" hehe Kýla kvikindið eða láta sem maður heyri það ekki? Annars er maður hættur að taka eftir þessu, maður verður ónæmur eftir að vera innan um svona mikið af karlrembum. Held að hin almenna meðal Jóna myndi gefa karlinum allgott millifótaspark ;) Imba Fox | 8:18 f.h. |
Ég heiti því hér með að 50.000 gesturinn á þessa annars ágætis síðu fær sendan glaðning í pósti frá mér ;) Leave your name and address :) Ég fylgist spennt með ;) Imba Fox | 3:33 e.h. |
Að vera sætur eða ekki sætur? Er það það sem skiptir öllu máli?
Strákarnir í vinnunni voru að tala um það um daginn hvernig Dave Navarro fór að því að hætta með jafn gullfallegri konu eins og Carmen Electra...... ég segi nú bara þetta..... það getur bara vel verið að hún sé hundleiðinleg, andfúl og prumpi allan liðlangan daginn, ég meina hvað vitum við?
Djöfull er ég orðin þreytt á þessari útlitsdýrkun í þjóðfélaginu, það er eins og fólk eigi ekki skilið að lifa ef það er með skakkar tennur, innskeift, tileygt, hafi níu putta, stór eyru, sé smámælt, sé sköllótt, með stórt nef og svo framvegis....
Vissuð þið að Marilyn Monroe var með 11 tær? Ég segi nú bara guði sé lof að fólk er misjafnt í þessum heimi því mikið væri hann grútleiðinlegur ef að allar konur væru eins og Jessica Alba og allir karlmenn eins og Brad Pitt? Ég ætla ekki að setja sjálfa mig í einhver dýlingsspor en mínir foreldrar kenndu mér snemma að allir eru jafnir sama hvað þeir heita, hvernig þeir líta út eða hvað þeir gera. Þess vegna finnst mér svo fyndið og hreint út sagt pínu heimskulegt þegar ég heyri til dæmis stelpur segja: "Ég vil að kærastinn minn sé með ljóst hár og krullur, beinar tennur, græn augu, helst 1.85cm, ekki feitur og svo verður hann að eiga marga vini, eiga góða fjölskyldu, eiga rosalega flotta og nýtískulega íbúð og helst keyra um á BMW!!!"Hvað er að????? Vá hvað þetta er veruleikafirrt lið!! Eigum við ekki að henda einu hundskvikindi inn í þetta líka og við blasir ekkert nema eintóm hamingja!!! Þar til að það kemur svo í ljós að þessi "fullkomni og beintennti krullukall" heldur framhjá og allt fer í vaskinn! Var þá ekki nær að hafa valið þann sem átti Volvoinn og var kannski ekki alveg jafn sætur? Æi vitið þið það að ég nenni þessu ekki...
Væri ekki skemmtilegra að eyða ellinni með einhverjum sem er skemmtilegur, einlægur, traustur, góður vinur, tryggur, hlýr, með góða nærveru, skynsamur, greiðvikinn, sem fær mann til að hlæja, sem hægt er að fíflast með og sem kann að meta mann eins og maður er heldur en með einhverjum sem var einu sinni fallegur? Fegurðin fölnar með aldrinum, en persónuleikinn er ávallt sá sami....punktur
P.S. Hehehe skemmtilegt nokk og smá útúrdúr en það er staðreynd að skjaldbökur geta andað með rassinum! (Bryndís ég var búin að gleyma þessu en rakst á þetta um daginn og hló ekkert smá!!!) Imba Fox | 6:43 f.h. |
Við systurnar erum með svoldið stórskrítinn og skondinn húmor okkar á milli og eins og ég hef áður sagt á þessari síðu þá kallar Kristján bróðir okkur alltaf Öskubuskusystur en fattaði ekki að það gerir hann náttúrulega að Öskubusku :) Hann vill bara fá að vera með en fattar ekki alltaf djókin okkar :) Allavegana, eitt af þessum djókum okkar er t.d. að senda hvorri annarri sms og segja "Hey það er mynd af þér á bls 25 í fréttablaðinu! Rosalega flott!" Svo flettir hin upp í Fréttablaðinu og við blasir mynd af brosandi hesti, forljótri kvakandi önd, einhverjum gömlum krumpuðum kalli, eyrnastórum öskurapa, kjagandi mörgæs og einu sinni var brandarinn extra ljótur og fletti þá önnur systirin (segi ekki hver vegna þess að þið megið njóta vafans um hver er verr innrætt ;) ) upp á mynd í dánarfregnum Moggans og sá þá mynd af frekar ófríðri manneskju sem var sem sagt að deyja. Já og svo hlæjum við bara..... iss!!! hehehe
Svo er ég líka farin að gera vinum mínum sama grikk. Greyið Abba mín var sérstaklega skemmtilegt fórnarlamb um daginn og hélt að það væri mynd af sér í Fréttablaðinu eftir að hún fékk sms frá mér. Búin að segja öllum í vinnunni sinni og það var ekki fyrr en þegar hún sá við blasa hvíta skælbrosandi gæs á einni síðunni að hún fattaði að ég var að stríða henni :) múhahahaha Já það er bara yndislegt að vera með einfaldan húmor :)
Anyways..... langaði að segja ykkur að það ER snilldarflott mynd af systur minni á bls 5 í Viðskiptablaði Moggans í dag :) Þvílíkt hot chick mar :) Enda hef ég ekki langt að sækja þetta ;) hehe Imba Fox | 5:57 f.h. |
Djöfulsins löðrandi kynþokki dauðans......... ég sakna þess að fá að horfa á hann í sjónvarpinu...... :) Úfff..... Imba Fox | 3:59 e.h. |
11. september!!
Mæli með því fyrir þá sem vilja vita meira um samsæriskenningarnar varðandi 11. september að horfa á þessa mynd sem heitir "Loose Change" og er eftir Dylan Avery. Hún fer núna eins og eldur um sinu um allt internetið! Hún er 1 og 1/2 tími að lengd þannig að takið ykkur tíma að tékkið á þessu.... ekki verra með poppi og kóki! ;) Þetta er ótrúlegt og fær mann til að hugsa sig aðeins um..... Var þetta kannski bara allt planað af amerískum stjórnvöldum? ...... Imba Fox | 8:57 f.h. |
Ji ég varð að sýna ykkur þetta ef þið eruð ekki búin að sjá þetta nú þegar! Þessi gæi er búin að ferðast um allan hnöttinn og tekur video af sjálfum sér á öllum stöðum sem hann heimsækir, dansandi eins og fáviti! Hann er í raun búinn að heimsækja næstum alla staðina á Top 100 wonders of the world!!! Og hugsið ykkur, hann fékk styrk til þess að gera þetta! Ekki slæmt? Spurning um að rabba við KB banka eða e-ð og plata þá til að styrkja mig um smá aur svo ég geti farið í heimsreisuna sem mig dreymir um??? Ég get allavegana dansað flottara en þessi Matt? ;) hehe Þetta myndband er síðan 2005 og þetta er síðan 2006. Ótrúlegt hvað heimurinn er stór og fallegur!
P.S. Tók ákvörðum sem ég hef verið að pæla í undanfarin 2 ár og lét loksins verða af því....... búin að vera ljóska alla ævi en er núna með ljóskaramellubrúnt hár!!! Vá hvað ég er ekki að venjast því!! Held að ég fari aftur yfir í ljóst........ fer fésinu mínu betur! :) En ég prófaði allavegana ;) Imba Fox | 6:41 f.h. |
Töför! Þessi kelling er bara kúl!!! Hefði gert nákvæmlega það sama í hennar sporum! Þoli ekki svona skítapakk sem ber enga virðingu fyrir annarra manna eigum og lífi! :) Eina leiðin er bara að stúta þessu! Var einmitt að ræða við vinnufélagana mína um nauðganir, ég er að segja ykkur það að ef einhver myndi reyna að fremja þann verknað í návist minni þá myndi delinn á honum fá að fjúka svo fljótt að hann myndi ekki taka eftir því fyrr en ég væri búinn að berja hann sundur og saman með tillanum og svo troða honum í kokið á honum ;) MÚhahahahaha!!!!!
P.S. Hafið þið einhvern tíma keyrt yfir flugmannstösku??? Sjitturinn, ég get svarið það að ég hélt að þetta væri steinn! ;) úpps :) hehehe Imba Fox | 9:44 e.h. |
Gleðifréttir!!! Anna María og Emil áttu lítinn ótrúlega sætan búbú þann 5. september. Fór að sjá hann í gær og jiminn hvað hann er ótrúlega gullfallegur með kolsvart hár. Ég er alltaf jafn heilluð þegar ég sé svona glæný búbú. Þetta er svo ótrúlegt, svo lítið, með litla putta og eyru og ég veit ekki hvað...... lífið er svo yndislegt! :)
Jæja komst Magni blessaður í lokaþáttinn, þökk sé öfgum íslensks þjóðfélags. Hann fékk aftur langflest atkvæði sem er bara snilldarfyndið. Vona samt að Toby vinni, vil alls ekki sjá Magna í hljómsveit með þeim Klikk, Krakk og Prump :) hehe Ég hlakka reyndar til að þessu rugli ljúki. Þá mætir maður ekki þreyttari en andskotinn til vinnu á miðvikudögum og fimmtudögum :) En sáuð þið þetta? Merkilega fyndið!!!! :) Við búum á svo sjarmerandi litlu landi að það er ekki normal.
Annars veit ég ekki hvað er að mér þessa dagana, ég sem hef lesið ca. 2 bækur að meðaltali á ári er núna með 4 bækur við rúmið mitt og er að lesa þær allar í einu. Líka nýbúin með 2 aðrar og langar að lesa allavegana 3. Líka hætt að horfa á sjónvarp og Jesús Bobby hvað það er frelsandi!!! Eina sem ég horfi á er Rockstar og reyndar stundum Beverly og Melrose fyrir svefninn ;) Nenni ekki einu sinni að horfa á fréttir enda stútfullt af neikvæðum og leiðinlegum fréttum.
Að lokum, ef þið hafið tíma að lesa "Áreitispistilinn" sem hún systir mín skrifaði síðast á síðunni sinni. Það hafa allir gott af því að hugsa sig aðeins um..... en eins og hún segir... það er enginn sigurvegari í lífsgæðakapphlaupinu! :)
Langaði að deila með ykkur áliti mínu á tannsnyrtivörum ;) Stundum getur verið algjört helvíti að finna góðan tannbursta en ég fann eina gerð um daginn sem ég kolféll fyrir: "Colgate ZigZag plus" :) Djöfulsins snilld! Þessi tannbursti ásamt tannkreminu "Colgate Total Fresh Stripe" eða "Crest Complete Extra Fresh" er bara ...... tennur og kjaftur í sjöunda himni :) Og svo tannþráður á eftir..... úff Einn snillingur sem ég þekki sagði að það að nota ekki tannþráð er eins og að fara í sturtu og ekki þvo sér að neðan :) Þannig að verið dugleg að bursta og "flossa" :) hehe
Vá hvað ég er sorgleg! Ætla að fara að finna mér eitthvað að gera...... ;) Imba Fox | 8:46 e.h. |
Eftir miklar rannsóknir, pælingar og umræður við vinkonur mínar hef ég komist að því að hægt er að vita ákveðna stærð með því að skoða fætur karlmanna ;) Sem sagt, þetta er ekki bara einhver sögusögn :) Eru ekki allir rosalega ánægðir að vita þetta? hehe
Var að hlusta á útvarpið áðan og heyrði svolítið sem ég hef ekki heyrt síðan ég var 17 ára...... það hafði einhver hringt inn og beðið útvarpsmanninn að lesa ástarkveðju! Ji munið þið eftir þessu? Nú hafa gemsarnir alveg tekið við. Ég man hvað það var gaman þegar strákarnir þurftu að hringja heim til manns og bjóða manni á stefnumót. Pabbi svaraði kannski í símann og spurði svo eftirá: "Hvaða Sauður var þetta?" hehe Pabbi er flottastur!
Djöfull var Mickey Rourke ómótstæðilega mikið gúmmulaði í kvikmyndinni 9 1/2 weeks! Var að horfa á hana á Sirkus en hún er frá árinu 1986. Í dag er hann ljótari og krumpaðri en rassgat á fíl. Sýnir manni að maður á að njóta þess að vera fallegur í þessi fáu ár sem maður hefur! Mér finnst ég til dæmis rosalega sæt (hafið kannski tekið eftir því hérna áður á síðunni hehe) og er meira að segja komin með broshrukkur en ég fagna þeim eins og hverjum öðrum atburði í lífinu - sýnir einfaldlega að ég hef verið glöð ung stúlka ;) Botox fær aldrei að koma nálægt mér skal ég segja ykkur. Svo er merkilega fyndið hvað jafnvel ljótustu karlmenn geta orðið ótrúlega drop dead gorgeous ef þeir hafa sjálfstraust og sjálfsöryggi. Er handviss um að Karl Bretaprins er svoleiðis því ekki hefur hann náð í tjéllingar út á fegurðina ;)
Veðrið búið að vera yndislegt síðasliðna daga og hef ég heyrt að það sé spáð 28°C hita á mánudaginn..... scheise.... en heppilegt samt, akkúrat þegar búið er að plana allsherjar fyllerí með grillívafi úti í skógi í heimabænum! Hlakka svoooooooona mikið til! Þvílíkur munur að fá svona veður í vinnunni þar sem ég er mest í að ýta út flugvélunum þessa dagana. Gott að komast út og vappa á hlaðinu í sólinni.
Við systkinin gerðum okkur dagamun og skelltum okkur í bíó á myndina "Click" með Adam Sandler. Mér fannst hún drullufyndin og líka dálítið dramatík á köflum. En það var eitt atriði sem stóð gjörsamlega uppúr. Hef aaaaaldrei hlegið svona rosalega í bíó áður, hló kannski ennþá meira því að ég var með Kristjáni og Olgu og við höfum svoldið sérstakan systkinahúmor. Hinu fólkinu fannst þetta ekki eins fyndið en við hlógum langt í næstu 5 ef ekki 6 atriði! Mæli með að þið tékkið á þessari mynd, held að það fattist strax hvaða atriði ég er að tala um!!! :)
Bla bla bla bla...... hey já og eitt enn.... ég verð að fara að læra að drekka hvítvín og rauðvín.... þetta er ekki hægt lengur! Hey og annað, Pólverjar eru bara svei mér þá bara hreinlega fallegt fólk...
Vá hvað þetta er búið að vera langt og ljómandi fínt frí :) Innihélt m.a. eftirfarandi:
* Tékkaði á Red light district í Amsterdam og kom mér á óvart hvað stelpurnar þar voru sætar, var alltaf búin að ímynda mér eintómar herfur með lafandi skinn og ljótar tennur en þær voru alveg voða sætar greyin en ég vorkenni þeim samt. * Mátaði ekta hollenska klossa á sveitabæ í Hollandi og fékk mynd af mér með hollenskum hippa og kjúkling :) * Fór á gamlar heimaslóðir og heilsaði upp á gamla kunningja, skoðaði skólann minn og gamla heimilið - skrítið!!! * Upplifði hita DAUÐANS sem var einum of fyrir Íslendinginn, 40°C er bara ekki normal og ekkert skrítið að fólk þarna við Miðjarðarhafið líti út fyrir að vera um áttrætt þegar það er bara um fimmtugt með krumpur á við Grand Canyon ;) * Fór aftur til Cannes...... ég EEELSKA Cannes! * Passaði lítil frönsk börn..... óþolandi að horfa á þessi litlu kríli tala miklu betri frönsku en ég...... hehe en þau skildu mig allavegana... * Skoðaði Monaco betur en áður..... Monaco er megakrúttlegur staður! Verst að Albert prins er að deita einhverja gellu! ;) * Upplifði frábæra stemmningu í France þegar Frakkar unnu Brasilíu 1-0 - hélt að allt ætlaði um koll að keyra. Frakkarnir fögnuðu eins og þeir hefðu unnið Heimsmeistaratitilinn! Baaara gaman. * Lenti í heeeví "turbulance" milli Nice og Amsterdam og sá í fyrsta skipti eldingar með því að horfa ofan á skýin en ekki upp í þau :) Rosa fínt! * Fór í hollenska útskrift, fór með vinkonu minni í hollenskan ökutíma og fór í ekta hollenskt partý. * Fór í 4 rússíbana af 6 í skemmtigarði í Hollandi - ógisslega gaman! * Fór í slag við bandóða flugu sem var að "stalka" mig. Hún fékk heldur betur að finna fyrir töskunni minni ;) Ég vann.... * Lærði fullt af nýjum hollenskum orðum - merkilegt að þeir skuli kalla það tungumál þegar fólk er í rauninni að skyrpa á hvort annað! *Bráðnaði næstum því á ströndinni - stakk af í skugga og fékk mér ííískaldan bjór og horfði á fótboltann :) * Er orðin sérfræðingur í að greina hasslykt í margra metra fjarlægð - rosalega mikið um þetta, sérstaklega í afslöppuninni við Miðjarðarhafið! * Fór beint upp í sumarbústað með MR stelpunum þar sem, eins og vanalega, var kjaftað og kjaftað og hlegið og étið og kjaftað og hlegið meira. Held að skrítni sænski "blómasafinn" hafi valdið því að við fundum aðeins fyrr á okkur en við héldum ;) ....................................................................................
Samt alltaf gott að koma heim - er svo mikill heimalingur! En djöfullinn að France skyldi ekki vinna HM!!! Þá hefði ég unnið veðmálið í vinnunni. Skondið þar sem allir sögðu að Frakkana svo gamla og með ömurlegt lið! Fúlt að sjá þá tapa í vítaspyrnukeppni og horfa á Zidane enda ferilinn eins og hann gerði. Mér finnst Frakkarnir flottir ;)
En allavegana..... back to reality! Veit einhver hvar maður fær svona bangsa til að kúra hjá? Please let me know.... ;) hehe Imba Fox | 10:00 e.h. |
I am off to South-France/Amsterdam! Það er 26°C hiti í Nice núna, glampandi sól og ekki ský sjáanlegt í margra mílna fjarlægð fyrir þá sem ekki vissu ;) Djöfull skal ég ná mér í lit, er komin með ógeð á að vera eins og hvít kanína á kafi í snjó! Svo ætla ég að skoða allt það sem Amsterdam hefur upp á að bjóða ;) hehe
Annars er ég aaaafar sátt við fyrsta íslenska "Sæta vikunnar" ;) Gef honum auka 5 vöðlur fyrir það. En eins og ég segi, hann er skrilljón sinnum flottari læf! Og að sjá hann læf í engu nema skýlu í Lóninu......úff..... flooooored!!! ;)
Hafið það gott skinnin mín, kem etv með pistil frá France ;) Luv :* Fransí
P.S. Fín mynd af mér og Rachel á leið á ströndina ;) ...... I wish ;) Imba Fox | 12:03 f.h. |
LOOOOOOOKSINS sól þegar ég er í fríi :) JEI JEI JEI!!! Amy J var svo sniðug að draga mig í Lónið í dag og við fengum ekki bara þessa glimrandi fínu sólbrúnku, heldur fengum við að sjá að ég held allt Kínafólk sem til er. Fyrst komu 5 Kínakallar vappandi... og allir í alveg eins sundskýlu. Svo komu 8 Kínakallar og viti menn... allir í alveg eins sundskýlu og hinir sem á undan komu. Því næst komu óteljandi Kínakallar og ekki brugðust þeir.... jú jú allir í eins sundskýlu. Þetta var bara fyndið! Héldum fyrst að það væri magnafsláttur í Kína af þessari sundskýlu en komumst svo að því að þeir fengu þetta lánað hjá Lóninu þannig að ef þið ætlið í Lónið og fáið lánaða skýlu (mæli by the way ekki með því) þá getið þið bókað það að það var einu sinni Kínakall í henni :) hehehe
Annars er ég aðeins brúnni á hægri hliðinni.... hehe Sá svo ótrúlega sætan strák að ég bara gat ekki hætt að horfa. Hugsa að hann hafi þokkalega unnið sér inn titilinn "Sætur vikunnar" í næstu viku þó að hann sé íslenskur :) Legg þetta í nefnd. Úff mar..... hann var ekki í Kínakallaskýlu..... iss það á að vara mann við þegar svona lið er í nánd.... ég tók ekki einu sinni vöðlurnar með.....
Allt að verða vitlaust í Leifsstöð.... skil það AFAR vel enda fólk löngu búið að fá nóg af því að láta traðka á sér, drulla yfir sig og dúndra í óæðri endann á sér, bara fyrir það eitt að vilja fá mannsæmandi laun fyrir vinnu sem hefur í för með sér jafn mikið álag og er þarna uppfrá. Held að sumir geri sér ekki grein fyrir því hvað það er slítandi að vakna kl 4:30. Og stundum verða dagarnir svo slæmir og farþegar geta orðið svo andstyggilegir að maður er tekinn fyrir og hakkaður í spað. Æi nenni ekki að röfla um þetta..... það skiptir líka máli að vinnan er skemmtileg og það er mín svo sannarlega. Make love not war! And give me a raise... hehehe Imba Fox | 10:56 e.h. |
Ekki bara það að fíllinn hafi stigið á vesalings kallinn, heldur aðallega það sem stendur undir myndinni! Það skal sérstaklega taka það fram að fíllinn á myndinni sé ekki sá sem kramdi manninn. Í fyrsta lagi: Myndi maður erfa þetta við akkúrat þennan fíl? og í öðru lagi: Hvernig í andskotanum á maður að þekkja þennan fíl frá öðrum fílum? Eru ekki allir fílar eins? Já mér er bara spurn! hehe Ef fíllinn hefði verið með tattú undir öðru eyranu þá væri það annað mál! Hálvitar! ;)
P.S. Eru fílar í Frakklandi? Ég er alltaf að átta mig meira og meira á því hvað þetta land er skemmtilegt ;) Imba Fox | 12:02 f.h. |
Jú jú alveg ágætis helgi afstaðin sem innihélt ammli, vinnupartý og sumarbústaðarferð. Emil gamla hrukkeðla varð þrítugur á fimmtudaginn og héldu þau Anna uppá það á föstudaginn. Ógisslega góður matur by the way sem verður seint toppaður. Ég á eftir að fá það margfalt borgað þegar ég verð BIG 30.... sjitt mar.... ég kallaði Emil öllum hrukkudýragamlingjanöfnum sem ég mundi eftir. Sorry Emil minn, þú veist að ég var að djóka... þú ert fallegur ungur maður og heppinn að eiga lambið hana Önnu Maríu, sem átti by the way ammli í gær :) Enn og aftur til lukku :) Lov jú :)
Svo var vinnupartý sama kvöld, ljómandi fínt partý í boði IGS. Pólverjarnir gúffuðu í sig keti og bjór hehe :) Krissi bar upp hvert bónorðið á fætur öðru, Pólverjarnir drukku bjór, Krissi varð mafíósi, Póverjarnir áttu dansgólfið þangað til ég, Róbert og Kidda komum og sýndum tilþrif :) Vissuð þið að það er inn núna að dansa með rassinum... æi svona eins og Beyoncé :) bara gaman :)
Tók svo netta afslöppun með M&P, sys og litlu mús í bústaðnum restina af helginni. Spilað og tjillað sem aldrei fyrr. Mæli með fyrir þá sem ekki hafa heyrt íslensku útgáfuna af hinu margfræga Elvis lagi "Hound Dog" með hljómsveitinni "Hundur í óskilum" then go get it! Ég er búin að vera með það á heilanum í allan dag í vinnunni og farin að kalla vinnufélagana hunda og ég veit ekki hvað :) hehehe Setningar eins og "Sjálfur geturðu verið hundur!", "Þú ert ekkert nema hundur!" og "Hundurinn þinn!" fá að fjúka hér hægri vinstri. En eins og ég segi, þið kannski fattið ekki djókið nema hlusta á lagið ;)
Annars er HM í fótboltanum að tröllríða landanum og höfum við fengið okkar skammt hér í litlu deildinni okkar enda meirihlutinn æstir karlkyns fótboltaáhugamenn. Þeir eru búnir að setja upp veðmál um hver vinnur og hverjir hreppa 2. og 3. sætið. Ég get ekki verið minni manneskja en að taka þátt þó ég hafi ekki hundsvit á fótbolta. Það var mikið hlegið þegar ég setti upp spána mína sem er svona: 1. Frakkland 2. Brasilía 3. Spánn Ég segi nú bara sá hlær best sem síðast hlær. Það væri svoldið flott ef gömlu Frakkarnir mínir myndu vinna þetta og ég fæ aukabónus við launin mín. Sjáum hvað setur þegar feita tjéllingin er búin að segja sitt síðasta.
Annars er ég enn að vona að sumarið fari nú að koma.... hellúúú :)
Já það má með sanni segja að dagurinn í gær hafi tekið óvænta stefnu þegar leið á kvöldið en eitt er víst... aldrei að fara þreyttur út úr húsi því þá geta tilfinningarnar borið mann ofurliði.
Dagurinn í gær hófst með því að ég drattaðist á lappir um 8:00, eftir tæpalega 2ja tíma svefn þar sem ég var á næturvakt, til að mæta á námskeið í "dangerous goods" á vegum vinnunnar sem endaði með prófi sem ég rumpaði af einn tveir og snell. Þegar þessu lauk á hádegi tók ég mig til fyrir útskrift systur minnar sem var að klára stúdentinn frá FB og þessi 2ja tíma athöfn var alveg þess virði að horfa á stóru systur ná loksins einum áfanganum enn í lífinu. Hún var svo flott að það var eins og að hún svifi á skýi þegar hún tók við einkunnunum og svo óvæntum verðlaunum fyrir góðan áragnur í fjölmiðlafræði - fjórar 9ur og ein 10a :) Er stolt af þessari elsku :)
Þessu næst dríf ég mig heim til Kef í snatri til að reyna að lúlla smá fyrir partý kvöldsins en Berglind Harpa og Reynir voru sem sagt að halda uppá afmælin sín saman með pomp og pragt. Ég næ lítið að lúlla og fer því af stað frekar úldin af stað í bæinn en hugsa bara - "Æi ég verð þá bara fyrr hífaðri!" hehe En í stuttu máli sagt þá endaði þetta afmæli með brúðkaupi Beggu og Reynis og þar sem ég er alltaf svo mikill kjúklingur í brúðkaupum þá kom þetta mér svo á óvart að ég byrjaði að tárast eins og helvítis kelling... grenjaði meira en allir í brúðkaupinu.... oj ömurleg.... Það hjálpaði heldur ekki að Berglind var svo ótrúlega falleg og sæt og yndislega krúttleg, Stefán Hilmars söng uppáhalds lögin þeirra Reynis eins og engill og þau voru svo sæt svona ástfangin og gátu varla haft augun af hvoru örðu! Þetta var bara rosalega fallegt allt saman..... (þið sem eruð að fatta væmnu Imbuna núna.... æi ég nenni ekki að fara út í það - ég er með minnsta hjarta í heimi)
En þá er það mesta sjokkið. Haldiði að ég hafi ekki verið eina vinkonan í hópnum sem ekki vissi af þessari athöfn!!! Allar hinar vissu þetta og hvers vegna... jú jú einungis vegna þess að þær ætluðu ekki að sýna sóma sinn í að mæta í "afmælið" og auðvitað urðu þær að mæta því þetta var brúðkaup þannig að þeim var mútað, sagt frá leyndóinu svo þær myndu mæta. Ég var eina hreindýrið sem ætlaði svo pottþétt að mæta, enda svo fyrir löngu búið að plana "afmælið". Hefði verið réttast að ég vissi af þessu en ekki þær. Ok þetta átti sem sagt að vera leyndó en fyrst allar hinar vissu hvaða máli skipti það að ein vissi í viðbót?
En ég er svo græn og fattlaus að til að ég myndi ekki fatta allt plottið, sem ég var by the way næstum því búin að komast að, þá lét ég ljúga því að mér að önnur vinkona mín væri ólétt og ég alveg í skýjunum yfir því og óska henni til hamingju og ég veit ekki hvað og hvað..... finnst ykkur þetta ekki fallega gert? ....... æi ég var allavegana ekki sátt. En lét það ekki skemma fyrir mér og skemmti mér vel enda góður dagur, yndisleg brúðhjón og ég veit ekki hvað og hvað.
En þrátt fyrir allt saman þá var ég eins og fjandans kelling við athöfnina og eitthvað eftir það, drulluþreytt, sjokkeruð, glöð, fúl, dolfallin og svikin út af ljótri óléttulygi!...... segið mér eitt.... hvernig mynduð þið bregðast við.... örugglega alveg eins og ég...
En eins og ég segi, viðbruðarríkur dagur........ púff mér finnst eins og ég sé mér hausinn ofan í sandi.... satt að segja þá finnst mér það versta tilfinning í heimi að líta út fyrir að vera eitthvað stupid og koma af fjöllum og allt í þá áttina. Þannig að bara svona til upplýsinga.... ekki ljúga.... því af fenginni reynslu frá því að ég var lítill krakki þá leiðir ein lygi af sér aðra lygi og á endanum er maður kominn í dýpsta skít í heimi og með fólk sem snýr bakinu í mann. Sannleikurinn er, mun og verður alltaf sagna bestur - sama hversu bitur hann er. Því miður þurftu sumir að komast að því við þennan annars stórkostlega atburð sem ég var viðstödd í gær.
Ég ætti kannski að íhuga að verða prestur fyrst ég þykist vera svona heilög ;)
Í fyrsta lagi þá var ég mega pirruð að Chris datt út í American Idol í síðustu viku. Hann átti að vinna... flottur rokkari sem söng líka róleg lög rosalega vel. Ég fékk literally goosebumps þegar hann söng eitt af mínum all time favorites "What a wonderful world" og ef einhver veit hvar ég get nálgast útgáfuna af því lagi með honum, then please let me know.
Langar obboðslega mikið til að sjá "The Da Vinci Code" - fer á hana í bíó á næstunni :) En skil ekki hvers vegna Ron Howard valdi þá bók til að gera kvikmynd úr vegna þess að ég er að klára "Angels & Demons" og hún er svo miklu meira spennandi heldur en sú fyrrnefnda. Ég gat varla lagt "The Da Vinci Code" frá mér þegar ég las hana en ég sef með "Angels & Demons" uppí hjá mér :) Dan Brown er ótrúlegur.... Svo tek ég nú alveg undir það sem Ian McKellen sagði við sýningu myndarinnar í Cannes, fólk sem þykist eitthvað voða trúað er núna að mótmæla að myndin skuli yfir höfuð sýnd og bla bla bla.... hvar var þetta fólk þegar bókin var gefin út.... það er í raun að gefa í skyn að fólk sem fer í bíó er heilalausara en það sem les..... fokking hálvitar... oh ég þoli ekki svona múgæsingsheimskufólk.
Anyways, var eitthvað utan við mig um í gær. Fór í 10/11 og lagði bílnum hinum megin við götuna. Sá pínu eftir því vegna þess að ég þoli ekki að bíða eftir því að láta einhvern bíl stoppa fyrir mér og hleypa mér yfir, sérstaklega þegar rúnturinn í Keflavík liggur akkúrat þarna framhjá. En allavegana þegar ég er búin að versla þá stend ég fyrir utan og bíð eftir að einhver stoppi. Svo hleyp ég yfir þegar raðirnar með fullt af unglingum með bólur stoppa og hleypa gömlu beyglunni yfir og er að drífa mig svo mikið að ég ýtti á lykilinn til að opna bílinn og stekk inn í næsta bláa Yaris..... jú jú ég held að þið vitið hvert ég er að fara. Finn svo að sætið var eitthvað harðara en í Kisa mínum, innréttingin allt öðruvísi á litinn og viðbjóðsleg reykingarstækja inni í bílnum. Ég læddist aftur út úr bílnum og reyndi að láta lítið fyrir mér fara og hendist inn í minn bíl sem var aðeins aftar :) múhahaha Af hverju læsir fólk ekki bílunum sínum????? Ég læsi honum alltaf.... þó að ég standi við hliðina á honum... en þetta var "skemmtilegt".
En þá er það bara áfram Finnar í Eurovivion....... mætti annars halda að það hafi verið skylda að vera í hvítu í ár.... það var þó gaman að sjá Silvíu okkar í svona flottu dressi og hún hleypti nú reyndar lífi í þessa keppni sem verður hallærislegri með hverju árinu sem líður. Austantjaldslögin fá alltaf fullt af atkvæðum þrátt fyrir lög frá helvíti. Fokkings pólitík alls staðar. Svo má alls ekki segja "fuck" en dansararnir mega klæða sig eins og stripparar í g-streng og í svo flegnu að annað hvort sést upp í heila eða bara boobsin pompa út um allar trissur....hnuss..
Já svona er þetta orðið, Þorgerður vinkona mín er í Thailandi núna og tjáði okkur það að samkvæmt einhverri könnum þá nota 95% thailenskra karlmanna vændiskonur að staðaldri... sorglegt... sé fyrir mér ungar stelpur þurfa að sofa hjá ógeðslegum feitum og ljótum sveittum tippalingum bara til að eiga fyrir nauðsynjum..... oj!
En að öðru.... djöfull er til alltof mikið af sætum mönnum.... eða er þetta bara sumarið og þeir eru farnir að fækka fötum :) múhahaha "How are you doin´?" Imba Fox | 7:05 e.h. |
Ji vitiði hvað! Icelandair splæsti páskaeggjum á allt liðið!! Er búin að vinna hjá fyrirtækinu síðan 2001 og er þetta í fyrsta skipti sem þetta er gert og vonandi ekki í það síðasta. Þetta er rosalega flott hjá þeim því ekki bara það að við fengum páskaegg, heldur var það merkt Icelandair og var búið að breyta gömlum íslenskum málsháttum í málshætti tengda Icelandair t.d. fékk ég "Icelandair flýgur í flest skjól", Jonni fékk "Oft veltir lítill hlaðmaður þungu hlassi" og Pétur fékk "Sjaldan er ein flugfreyjan stök" :) Einnig fékk einhver "Flýgur hver til fjörsins" Ýkt sniðugt hjá þeim :)
Annars er búið að vera frekar rólegt í vinnunni yfir páskana, mest búið að tjilla og borða góðan mat eins og maður á til að gera á hátíðs- og tyllidögum! Ágætt svona öðru hverju á milli allra hinna crazy mofo daganna :) Horfðum m.a. á Snatch! Það er möst að horfa á þessa mynd með reglulegu millibili, ekki bara ótrúlega fyndin heldur mikið úrval af föngulegum karlmönnum!
Talandi um karlmenn.... haldiði að ég hafi ekki bara fallið fyrir hóp af Pólverjum í gærmorgun....... nei ekki það að þeir voru eitthvað mega sætir... ég datt og það á annað hnéð og lenti þannig eins og ég væri að biðja um hönd eins þeirra í hjónaband! Typical my luck! Þeim var skemmt ójá! Svo datt Kristín líka úti á hlaði.... hehehe Datt beint á rassinn og rann næstum því undir eina flugvélina á hlaðinu! Múahahaha hefði viljað sjá það! Já það er um að gera að fara varlega á þessum síðustu hálkudögum vetrarins..... Imba Fox | 12:29 e.h. |
Djöfull myndi ég gefa á mér annað nýrað fyrir einn svona með öllum fylgihlutum og steingráan að lit! Alltaf gott að láta sig dreyma......
Annars reyndi yfirmaðurinn minn að gabba okkur í gær. Það lenti einkavél og hann spurði okkur hver vildi þjónusta hana og enginn var neitt voðalega æstur í það þannig að hann bað mig. Svo var ég ekki alveg að nenna þessu og hann sagði "Imba, lestu beiðnina!" og ég gerði það og var samt ekkert að sýna neinn ofuráhuga. Þá benti hann mér á nafnalistann á farþegunum og sá ég þá að allar kellingarnar í Desperate Housewifes væru um borð í einhverri promotion ferð og væri að stoppa hér til að taka eldsneyti. Yfirmaður minn hélt að af því að við erum þrjár stelpur sem vinnum í Load Control að við yrðum geeeeðveikt æstar en engin af okkur horfum að ráði á þessa þætti og ég hef ekki einu sinni séð einn þátt þannig að mér var skítsama ;)
Ég vappaði út í vél og horfði restin af starfsfélögunum mínum út um gluggann á þegar ég tók niður upplýsingar fyrir fuelkallinn en fór ekkert inn í vél. Á meðan kölluðu strákarnir í talstöðina "Imba, fáðu eiginhandaráritun fyrir okkur!" o.fl til að reyna að láta mig tékka á þessu (hann sagði sem sagt öllum hinum að þetta væri djók) En ég var bara tjill tjill og gekk frá vélinni og svo fór hún í burtu. Yfirmaðurinn minn var var frekar svekktur því þetta floppaði alveg! Ég sagði honum að ef þetta hefði verið crewið í Prison Break þá hefði ég kannski orðið eitthvað spennt :) múhahaha By the way þetta er sami yfirmaður og bakaði vöfflurnar um daginn. Finnst ykkur hann ekki skemmtilegur!?! Mér finnst hann æði!!! Imba Fox | 3:04 e.h. |
Átti í skemmtilegum samræðum við bandarískan vin minn um muninn á bandarísku og íslensku fólki hvað varðar sambönd, skuldbindingar og bara hegðun gagnvart hinu kyninu. Við Íslendingar erum stundum fullgjörn á að dæma Kanana hvað þeir eru fljótir að gifta sig (kannski eftir að hafa þekkst í ár) og eignast oftast ekki börn fyrr en þeir eru búnir að gifta sig o.s.frv. Ok persónulega myndi ég aldrei gifta mig eftir að hafa þekkt gæjann í ár! Það er bara rugl! En mér finnst aftur á móti mikið til í því að gifta sig áður er krakkaskrípin koma, það er að segja ef maður giftir sig yfirhöfuð!
Það er meðal annars eitt af því sem þessum vini mínum finnst svo fáránlegt við íslenskar konur. Þær eiga kannski 3 krakka með 3 mönnum og enda svo einstæðar! (ok ýkt dæmi en það er hellingur um þetta) Held að það sé hvergi annars staðar í heiminum jafn mikið af ungum einstæðum mæðrum eins og hér. Of ef þær eru ekki einstæðar þá eru til stelpur sem eru búnar að sofa hjá svo mörgum að þær hafa enga tölu á því hversu margir rekkjunautarnir hafa verið. Þær eru kannsi staddar í partýi og hafa sofið hjá 5 af 10 körlunum sem þar eru – jammííí!!! >:Þ En þrátt fyrir þetta þá finnst honum samt mikið úrval af fallegu kvenfólki hér miðað við þær í USA. Í USA segir hann að standard kallanna á konum ca. svona: 1)Ugly, 2) Do-able og 3) Cute, en á Íslandi ca. svona: 1) Ugly, 2) Cute og 3) Very attractive ;) hehe
Fyrir mitt álit þá eru margar ungar stelpur bara orðnar druslur fyrir tvítugt. Sá á heimasíðu um daginn að þar voru tvær stelpur búnar að skrifa lista inná bloggið sitt með gæjunum sem þær hafa sofið hjá og voru að deila því með öðrum hvort það væri þess virði að sofa hjá þeim eða ekki. Listinn var frekar langur og voru fullt af frægum aðilum á honum. Mikill klassi? Niiiii bara druslulegt!
Svo fannst vini mínum líka svo fyndið hvað íslenskir karlmenn eru lengi að þroskast og halda að þeir séu ungir að eilífu, sérstaklega á aldrinum 20-40. Bíða og bíða með það að ná sér í konu og eru bara að eyða tímanum í að skemmta sér og guð má vita hvað og fatta svo þegar þeir eru 40 ára að einu konurnar sem eftir eru eru einstæðu mæðurnar og þá eru þeir með svo miklar kröfur að þeir reyna og reyna við litlar 19 ára stelpur og halda að þær vilji þá en vita ekki að stelpum á þessum aldri finnst bara gaman að djóka í þessum gömlu köllum en ætla sér aldrei neitt með þá! Fattar ekki alveg hvað þessir karlar eru að hugsa og halda að þeir séu að missa af?
Já, svona er þetta skemmtilegt :) Ég gat ekki annað en skemmt mér yfir þessum pælingum! En svona er bara Ísland í dag. Fólk er ekkert að drífa sig að neinu. Ég ætla ekki að vera að dæma einn eða neinn, hef það bara nice hjá m&p þó að ég sé nú að leita af íbúð! Bara svo fokking dýrt að kaupa þessa dagana!!! Svo er ég líka svo kröfuhörð sjálf á kalla og plús það að ég gæti ekki hugsað mér að eiga krakka… sjitt! Allavegana ekki núna! Fínt að knúsa litlu frænku og svo á hún góða múttu sem sér um hana :) hehe Vitið þið hvað leikskólapláss kostar!!! Fukk ég ætla ekki einu sinni að ræða þetta… hvort eð er orðið alltof langur pistill og þið sem nenntuð að lesa… þið eruð sannir aðdáendur ;)
Knús í bili & eigið yndislega helgi :) Imba Fox | 9:09 f.h. |
Samkvæmt þessu prófi þá á ég að vera 17 ára..... Hmmm veit ekki hvort ég á að vera stolt af þessu eða.... æi þið sem þekkið mig best vitið að ég er snarklikkuð og haga mér sjaldnast samkvæmt mínum aldri sem er by the way 26 ára :) hehehe
Tékkið á þessu og segið mér hversu gömul þið eruð "on the inside" ??? ;) Imba Fox | 12:17 e.h. |
1. The Captain as seen by passengers 2. The Captain as seen by the co-pilot 3. The Captain as seen by the flight attendant 4. The Captain as seen by himself 5. The Captain as seen by the F.A.A 6. The Captain as seen by station agents 7. The Captain as seen by the dispatchers 8. The Captain as seen by his wife 9. The Captain as seen by management at contract time Imba Fox | 9:20 f.h. |
... on second thought...vonandi hefur enginn verið að ljósrita á sér afturendann þegar ég ljósritaði á mér fésið einu sinni..... hehe NIIIIIICE!!! Við stelpurnar áttum það til að gantast aðeins á þjónustuborðinu ;) hehe Niiii doubt it!
Róbert og Jonni vinnufélagar eru búnir að setja mig í blótbann. Þeim fannst ég blóta allt of mikið! Ég er samt með blótkvóta, ég fæ að blóta 10 sinnum á dag á meðan ég er í afvötnun ;) Believe me það er ógisslega erfitt fyrir mig þar sem ég blóta svona 3000 sinnum á dag!!! En þeir sögðu ekki neitt um það að ég mætti ekki skrifa blót....
...verð að fá smá útrás...sorry ekki taka þetta til ykkar!!! F&%$$#ing He&%#/*+tis Mot&&%+er Fu/*%%6$#ing An$%##ans B6%ch He#$%%&tis H#$"&i!!!
Við erum að tala um lög og ég veit ekki hvað og hvað!!! Kannski getum við pantað gullbuxurnar eftir allt saman! Þeir sem misstu af þá vitna ég í pistilinn minn á þessari síðu frá 27. febrúar!!!